Systurnar reka einnig fyrirtækið Tungusilung ehf., ásamt föður sínum Magnúsi Kr. Guðmundssyni. Fyrirtækið er með bleikju og regnbogaeldi. Bleikjan er aðalega seld til útflutnings en það hefur aukist mikið sala á ferskri bleikju innanlands undanfarið. Regnboginn er hinsvegar aðallega reyktur, grafinn og notaður í regnboga-paté.

Hægt er að panta í síma: 456-2664 og 863-0977

Vörurnar fást í flestum Samkaupsbúðum víðsvegar um landið, Melabúðinni, Fjarðarkaup, Rangá, Kolaportinu og Háaleitiskjöri - en þær eru allar fimm staðsettar í Reykjavík.

Einnig getur fólk keypt fisk hjá okkur á staðnum, fyrirtækið er staðsett við Strandgötu.